02ágúst
þessi síða er ekki að ganga, ég get ekkert gert hérna nema bloggað. Get ekki sett neitt inn
þannig að ég hef ákveðið að fara á eldgömlu síðuna mína folk.is/_haffa_
hafiði gaman af:P
Hafrún
31júlí
Jæja já, þá er maður komin heim frá Frönskum dögum, þvílíka snilldin. Mættum á föstudeginum, vorum komin um hálf tíu leitið fórum þá á brennuna, þar var hálf slöpp brenna og svo brekkusöngur.. Eftir brennuna fórum við bara á röltið, vorum fyrir utan Skrúð þar sem eitthvað ball var, nenntum ekki á það, heldur spjölluðum bara við mishresst fólk út á götu. Svo fórum við á tjaldstæðið, skellt var á tónlist, og voru nágrannar okkar misánægðir með það.. Sérstaklega konurnar... hehe, en svona er þetta þegar unglingar eru að skemmta sér, við erum ekkert rosalega tillitsstöm.. svo líka, þá er þetta útihátið:P
á laugardaginn fórum við Bergrós og Erla Rán á Egs, fórum í sund og svona. Fórum svo niður á tjaldstæði og fékk ég mér smá blund. Ofur þægilegt..en Bergrós, Erla Rán og Erla Bjarný fóru út á Reyðarfjörð á bílnum mínum, þær urðu næstum því fyrir bíl á leiðinni. Einhver hálfviti var að taka fram úr húsbíl sem var að koma á móti þeim. Svo þær voru bara ansi heppnar.
Kvöldið var svo tekið með stæl, við stelpurnar höfðum splæst í Passúa flösku saman. Svo gott;D fórum á ball í Skrúð með Súellen. Þeir voru ekkert súper góðir, en ágætir samt. Out Loud bjargaði ballinu algjörlega, enda fylltist gólfið algjörlega á meðan þeir spiluðu, varð nánast troðin undir. En maður á vini á mörgum stöðum sem rifu mann aftur inn í hópinn. Bara gaman, svo fór maður heim alveg búin á því. Komin með þokkalegt hælsæri.
Sváfum svo bara til svona tólf daginn eftir, og tjaldið þá komið á flot. Það rigndi eins og hellt væri úr fötu í alla nót, eða allavega frá því svona um fjögur. Ætlaði að fara á klósettið um tólfleiti og það fyrsta sem ég sá þegar ég opnaði tjaldið var stór lækur yfir fortjaldsteppið. Þá reif maður sig á fætur og tók allt niður, kominn pollur í tjaldið sjálft og svona. Og ég er að segja ykkur það að þegar ég var að taka hælana upp þá þurfti ég að vaða ökkladjúpan poll til að ná þeim. Við sváfum semsagt í stórum polli.. Geðveikt stuð, en þetta var bara punkturinn yfir i-ið.
Myndir koma svo fljótlega, gleymdi reyndar að taka myndir af flóðinu, það hefði verið flott. En ætli ég setji ekki einhverjar myndir sjálf. Svo eru Sæunn og þær reyndar með myndavélina mína núna, svo þær setja sjálfsagt inn myndir líka. Það kemur bara í ljós..
En fleira verður það ekki fyrr en eftir Versló :D:D það verður geðveiki! ;) hlakka til að sjá ykkur öll
Hafrún
24júlí
þá er keppni lokið í Austurlandsmótinu. Ég endaði í öðru sæti og er bara sátt:) Var nú ekkert rosalega langt á eftir henni Nikku. Held að ég hafi verið með 5.6 eða eitthvað og hún 6.2...
Það var alveg steikjandi sól báða dagana, en í dag var algjört logn. Þannig að þarna var algjör steik það var svo heitt, aumingja hestarnir að kafna, maður var varla búin að setjast í hnakkinn og þá fór að leka af þeim svitinn.. En ég hafi líka uppúr deginum í dag ansi vel brunna öxl, en ég sat í brekkunni í hlýrabol, náttúrulega ekki að pæla að setja á sig sólarvörn þegar maður keyrir af stað úr þokunni hér. og þessvegna brennur maður....held ég sé líka brunnin á nefninu... eins og alltaf.
emm... ég hef ekki hugmynd hvað ég á að segja meira, svo ég ætla bara að sleppa því. hafa þetta stutt og lag gott...
Hafrún
23júlí
já. mér hefur tekist að keyra á fugl, en það gerðist í gærkvöldi meira að segja. Var að koma af hestbaki og þarna voru tveir fuglar á götunni, mér síndist þetta vera bara mýs (var gleraugnalaus) en svo tók þetta sig á loft og annar þeirra fór bara beint upp í loft og á rúðuna hjá mér, veit ekkert hvað varð af honum. Dauður eða á lífi, gæti ekki verið meira sama, á ekkert að vera að þvælast á götunni
Já, þessi síða er eginlega ekki að ganga, því vafrarinn minn styður hana heldur ekki, þannig að ég get til dæmis ekki sett neina tengla inn eða neitt.. veit ekki hvert ég flyt mig þá næst, kannski bara aftur á blog.central. þar gekk þetta aðeins betur þó... kemur í ljós, sé hvað mér tekst að gera.
í dag var ég svo á móti á Egs, nánar tiltekið Opnu Austurlandsmóti í hestaíþróttum!. jájá, þar var ég í tölti í Ungmennaflokki og er þar í öðru sæti í augnablikinu.. svo eru úrslit á morgun. En eins og kannski einhverjir vita þá er Garpur upp á túni svo ég er væntanlega ekki á honum. Svo hann Gurri bjargaði mér og lánaði mér hana Ósk hennar Önnu Bellu. okkur gekk bara ágætlega í dag, erum held ég með 5.5 í einkunn, fengum held ég 5.3 , 5.6 og 5.8.. sem eru bara ágætiseinkunnir. Allavega ætla ég ekki að kvarta, þar sem við áttum ekki fullkomna sýningu:p en við gerum okkar besta á morgun.
En þangað til næst
Hafrún
18júlí
jæja, ætli maður bulli ekki eitthvað aðeins
Byrjum á helginni. Fór á djammið á laugardaginn eftir Eistnaflugið, var ekki á tónleikunum, kíkti aðeins á síðustu hljómsveitina. En djammið eftir það var geðveikt. Kíktum ég, Agnes og Höddi inneftir til Hákonar Gurra, þar fengum við okkur smá í glas og svo reddaði Inga Þórey og Þóra okkur úteftir, á barnum var slatti af fólki, þó mest allt saman rokkarar, þeir voru fínir. Allavega þeir sem við töluðum við, ekki einhverjir klikkaðir kallar eftir allt, þó örugglega eitthvað pínu klikk líka:P Ég fékk tvö sár þetta kvöld, annað var eftir sígarettu, sem var djöfull vont. og svo eitthvað sár á hnúann, veit ekki alveg hvað gerðist þar en það er að pirra mig geðveikt núna. Er alltaf að reka það í. Vill að lokum þakka öllum sem buðu mér í glas:D þurfti ekki að borga krónu:P (enda dagurinn eftir algjört æði)
Jæja svo er vikan bara að byrja að líða. Fer óðum að styttast í að maður flýji bæinn, en það er nægur tími til stefnu til að gera allt sem manni listir:P
En já ég var svo núna bara fyrir klukkutíma að stíga af baki, fór á hestbak með Gurra. Fékk að fara á "graddann" hann Hrók og ég dýrka þennan hest, alveg elska hann. Fór á hann og nýju merina hans Gurra um helgina, þau eru bæði æði :P
emm,, svo er bara spurning hvað maður gerir næstu daga, og helgar... Einhverjar hugmyndir.. Það er allt vel þegið. Spurning að skella sér á mót um næstu helgi.. Næla sér í síðustu stigin í stigamótinu í tölti.. Hemm,, gæti verið. Sé til
En þangað til næst
Hafrún
12júlí
jájá, mín er núna búin að bralla ýmislegt.í gær fórum við pabbi inn í gamla frystihús til að komast í grifjuna þar. Þar kíkti pabbi á púströrið mitt og kom þá í ljós að rörið var alveg í sundur við aftari kútinn.. eftir það fórum við niður á réttingarverkstæði Sveins og þá var mér sagt að koma með bílinn morguninn eftir, semsagt í morgun. Og það gerði ég, kom þarna rúmlega átta, afhenti bílinn og rölti í vinnuna. Ótrúlega dúleg. Tókst svo líka að finna flotta upptakarann minn sem hefur verið týndur í rúman mánuð, en þetta er svona kona, sem er nakin;) svona bronslituð. En í gærkvöldi sá ég glitta í hana undir sófanum mínum þeigjandi og hljóðalaust:P
Jæja tvö afrek búin.
Í gær fór ég svo líka inneftir og reif undan Garp, með hjálp Villa, og sleppti honum upp í fjall. En vinurinn þarf á þessari hvíld að halda fyrir skólann. En við ætlum nefnilega að fara að taka knapamerkið, og það er kennt á hverri önn, reyni að hvíla hann eins og ég get svona inn á milli.en já þá er ég búin að segja frá öllum afrekunum, nei, ég sótti svo bílinn líka í dag:) ekkert smá ljúft að keyra hann svona:D
Síjú
Hafrún
10júlí
Jæja, ætli maður verði ekki eins og allir aðrir. Ég ákvað að prufa þetta því tölvan mín styður ekki almennilega blog.central. Vonandi bara að þetta verði bara fínt hjá mér. Ágætt líka að breyta til svona öðru hvoru.Byrjum bara á því að segja eitthvað sniðugt.... eins og flestir vita núna þá er ég á leiðinni norður í skóla, verður bara gaman, ég er allavega búin að lofa sjálfri mér því. En já ég sendi fyrirspurn um daginn um hvort ég gæti fengið að vita fyrirfram í hvaða áfanga ég væri skráð og ákvað að bæta hestaáfanganum inn í leiðinni. en já, þegar ég fékk mail til baka þá kom í ljós að ég var skráð í áfanga sem ég var búin með, og ég er ekki frá því að þetta hafi allt verið falláfangar, það var bara eins og ég væri að koma upp úr 10 bekk. Veit ekki alveg hvort þau hafi ekki athugað það að ég hefði verið búin að vera tvö ár í skóla.. en já ég sendi þá bara til baka að ég væri búin með þessa áfanga og sendi rununa um það hvaða áfanga ég var búin með. En þar sem ég sendi það ekki fyrr en seinni partinn á föstudaginn þá er ég ekki búin að fá svar ennþá. En það kemur bara vonadi á morgun og vonandi fer þetta ekki allt í vitleysu.En já þetta er orðið ágætt "fyrsta" blogg, endilega commentið eða eitthvað, nenni ekki að vera að þessu bara fyrir engann..Hafrún Eiríksdóttir